Krossanes 5 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum utanhúss

Málsnúmer 2020110950

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 794. fundur - 10.12.2020

Erindi dagsett 27. nóvember 2020 þar sem Birgir Ágústsson fyrir hönd Olíudreifingar ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 5 við Krossanes. Fyrirhugað er að fjarlægja leka þakglugga og loka með járni. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.