Helgamagrastræti 49 - umsókn um bílastæði og úrtak

Málsnúmer 2020100803

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 789. fundur - 05.11.2020

Erindi dagsett 27. október 2020 þar sem Baldvin Jónsson sækir um að gera bílastæði við hús sitt nr. 49 við Helgamagrastræti. Fyrirhugað er að útbúa bílastæði á lóð fyrir allt að 3 bíla samhliða bílastæði við hús nr. 47b.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.