Davíðshagi 6 - umsókn um byggingarleyfi fyrir svalalokunum

Málsnúmer 2020100604

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 792. fundur - 26.11.2020

Erindi dagsett 21. október 2020 þar sem Þröstur Sigurðsson fyrir hönd íbúðareigenda á 1. og 3. hæð sækir um byggingarleyfi fyrir svalalokunum á 1. og 3. hæð húss nr. 6 við Davíðshaga. Leyfi fyrir svalalokunum á 2. hæð hefur þegar verið veitt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson og samþykki meðeigenda.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.