Langahlíð 18 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020090812

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 813. fundur - 07.05.2021

Erindi dagsett 29. september 2020 þar sem Álfhildur Ólafsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 18 við Lönguhlíð. Fyrirhugað er að útbúa þrískiptan glugga á austurhlið hússins. Innkomnar nýjar teikningar 2. maí 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.