Dalsbraut/Lundarskóli - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020090404

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 784. fundur - 02.10.2020

Erindi dagsett 11. september 2020 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um viðbyggingu, breytingar á gluggum og endurbætur á A-álmu Lundarskóla við Dalsbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 787. fundur - 22.10.2020

Erindi dagsett 11. september 2020 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar sækir um viðbyggingu, breytingar á gluggum og endurbætur á A-álmu Lundarskóla við Dalsbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 20. október 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 793. fundur - 03.12.2020

Erindi dagsett 11. september 2020 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af A-álmu Lundarskóla við Dalsbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 26. nóvember 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.