Beykilundur 11 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020090005

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 781. fundur - 11.09.2020

Erindi dagsett 31. ágúst 2020 þar sem Hildigunnur Rut Jónsdóttir sækir um heimild fyrir kerrustæði og úrtaki úr kantsteini við hús sitt nr. 11 við Beykilund. Meðfylgjandi er skýringarmynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir stækkun á bílastæði en getur ekki fallist á stækkun á úrtaki umfram 7 metra með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.