Hlíðargata 9 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020080949

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 781. fundur - 11.09.2020

Erindi dagsett 28. ágúst 2020 frá Jens Kristni Gíslasyni þar sem hann sækir um leyfi til að gera bílastæði og úrtak úr kantsteini við hús nr. 9 við Hlíðargötu samkvæmt meðfylgjandi teikningu.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæðið með 4 metra úrtaki með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.