Eyjafjarðarbraut - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020080831

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 781. fundur - 11.09.2020

Erindi dagsett 25. ágúst 2020 þar sem Bergur Steingrímsson fyrir hönd Isavia Innanlandsflugvalla ehf., kt. 591219-1380, sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu dæluskýlis og aðstöðu fyrir eldsneytistanka á flugvallarsvæðinu við Eyjafjarðarbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Berg Steingrímsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 786. fundur - 15.10.2020

Erindi dagsett 11. október 2020 frá Bergi Steingrímssyni fyrir hönd Isavia Innanlandsflugvellir ehf. þar sem sótt er um breytingar frá áður samþykktum teikningum af dæluskýli við eldsneytistanka. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Berg Steingrímsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.