Rauðamýri 7 - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2020070437

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 774. fundur - 17.07.2020

Erindi dagsett 13. júlí 2020 þar sem Valdimar Geir Jóhannsson sækir um stöðuleyfi fyrir tvo jarðvegsgáma á suðurkanti götunar fyrir framan hús nr. 7 við Rauðumýri. Tímabilið sem um ræðir er frá 30. júlí til og með 21. ágúst nk. og er ástæðan fyrirhuguð jarðvegsskipti vegna drenlagnar kring um húsið. Fyrir liggur jákvæð umsögn umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Gámur skal staðsettur fast við suður kant götunnar og að minnsta kosti 5m frá upphækkaðri gönguleið.