Stekkjargerði 6 - umsókn um garðhýsi

Málsnúmer 2020060960

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 772. fundur - 30.06.2020

Erindi dagsett 19. júní 2020 þar sem Jón Þorvaldur Heiðarsson sækir um leyfi fyrir garðhýsi á lóð sinni við Stekkjargerði 6. Meðfylgjandi er afstöðumynd, samþykki nágranna og teikningar.
Byggingarfulltrúi bendir á að samkvæmt byggingarreglugerð þarf ekki byggingarleyfi fyrir garðskúrnum, en vegna nálægðar garðskúrsins við glugga og bílgeymslu þarf sá veggur er snýr að bílgeymslu ásamt þaki að vera með brunavörn EI60.