Espilundur 15 - umsókn um stækkun bílastæðis og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020050591

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 770. fundur - 28.05.2020

Erindi dagsett 25. maí 2020 frá Jóni Baldvini Hannessyni þar sem hann sækir um stækkun á bílastæði og úrtak í kantstein við húsið Espilund 15 samkvæmt meðfylgjandi teikningu.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir 3ja metra breytt bílastæði austan aðkomustéttar. Heildarlengd á úrtaki verði 8 metrar, með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.