Grænamýri 14 - umsókn um stækkun bílastæðis og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020050580

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 771. fundur - 05.06.2020

Erindi dagsett 25. maí 2020 frá Ingvari Ívarssyni þar sem hann óskar eftir leyfi fyrir tvöföldun á bílastæði og úrtaki úr kantsteini við lóðina Grænumýri 14.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæðið með 7 metra breiðu úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur og leiðbeiningar um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.