Hrafnagilsstræti 32 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020050259

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 771. fundur - 05.06.2020

Erindi dagsett 14. maí 2020 þar sem Ari Rúnar Sigurðsson sækir um leyfi til að breikka núverandi bílastæði við Hrafnagilsstæti 32 til vesturs, það er að breiddin verði sex metrar mælt frá lóðarmörkum við Hrafnagilsstæti 30.
Byggingarfulltrúi samþykkir 6 metra breytt bílastæði með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.