Laumulistasamsteypan - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2020

Málsnúmer 2020020078

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 296. fundur - 26.03.2020

Erindi dagsett 1. febrúar 2020 frá Örnu Maríu Kristjánsdóttur, f.h. Laumulistasamsteypunnar, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 300.000 til verkefnisins Kraftur Kaldbaks, þar sem 16 listamenn frá ýmsum heimsálfum koma sama í Hrísey sumarið 2020.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð kr. 240.000 til verkefnisins.