Afskriftir krafna 2019

Málsnúmer 2019120311

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3667. fundur - 16.01.2020

Lögð fram tillaga sviðsstjóra fjársýslusviðs dagsett 6. janúar 2020 um afskriftir krafna. Kröfurnar eru frá árunum 2016 og fyrri árum. Jafnframt er um að ræða nýrri kröfur hjá gjaldþrota aðilum og einstaklingum sem fengið hafa greiðsluaðlögun. Samtals er um 461 kröfu að ræða að fjárhæð krónur 9.705.241.
Bæjarráð samþykkir tillögu sviðsstjóra fjársýslusviðs um afskriftir 461 kröfu að fjárhæð krónur 9.705.241.