Draupnisgata 2 - fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2019080006

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 321. fundur - 28.08.2019

Erindi dagsett 1. ágúst 2019 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Módelhúsa ehf., kt. 490200-2580, leggur inn fyrirspurn varðandi fyrirhugaða viðbyggingu við hús nr. 2 við Draupnisgötu með tilliti til deiliskipulags lóðarinnar. Meðfylgjandi eru tillöguteikningar.
Skipulagsráð samþykkir breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar í samræmi við fyrirspurn. Að mati ráðsins er slík breyting óverulega skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og þar sem breytingin hefur eingöngu áhrif á umsækjanda og Akureyrarbæ er ekki talin þörf á grenndarkynningu. Er sviðsstjóra skipulagssviðs falið að sjá um gildistöku breytingarinnar þegar endanlegur breytingaruppdráttur berst frá umsækjanda.