Goðanes 2 - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2019040369

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 720. fundur - 26.04.2019

Erindi móttekið 24. apríl 2019 þar sem Guðmundur Hjálmarsson fyrir hönd G. Hjálmarssonar hf., kt. 630196-3619, sækir um stöðuleyfi fyrir vinnubúðir fyrirtækisins á geymslusvæði þess að Goðanesi 2. Jafnframt er óskað heimildar til að halda vinnubúðum upphituðum til betri varðveislu. Meðfylgjandi er afstöðumynd af lóðinni.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Tekið er fram að ekki er heimilt að tengja frárennslis- og vatnslagnir við búðirnar, eða nýta þær til íveru.