Hafnarstræti 106 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss og skiptingu hússins í tvær eignir

Málsnúmer 2018030087

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 670. fundur - 15.03.2018

Erindi dagsett 5. mars 2018 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Drífu ehf., kt. 480173-0159, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss í húsi nr. 106 við Hafnarstræti. Einnig er sótt um að skipta húsinu í tvær eignir. Meðfylgjandi er teikning eftir Loga Má Einarsson. Innkomin ný teikning 14. mars 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Bent skal á gera þarf eignaskiptasamning fyrir húsið áður en lokaúttekt verður gerð.