Frumvarp til laga um breytingar á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis), 106. mál

Málsnúmer 2017030067

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3547. fundur - 09.03.2017

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 3. mars 2017 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingar á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis), 106. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 17. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0165.html
Bæjarráð vísar til bókunar bæjarstjórnar á fundi 7. mars sl.