Jarðskjálftamælir - Hrísey

Málsnúmer 2016120127

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 250. fundur - 11.01.2017

Erindi dagsett 16. desember 2016 þar sem Bjarni Gautason f.h. ÍSOR, kt. 600503-4050, sækir um leyfi til að setja upp jarðskjálftamæli í Hrísey. Skipulagsstjóri veitti bráðabirgðaleyfi þann 19. desember 2016.
Skipulagsráð samþykkir uppsetningu jarðskjálftamælis í Hrísey. Umsækjandi skal vera í samráði við hverfisráð Hríseyjar við nákvæma staðsetningu og uppsetningu búnaðarins.