Grænamýri 6 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2016050169

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 586. fundur - 19.05.2016

Erindi dagsett 18. maí 2016 þar sem Michael Jón Clarke sækir um bílastæði á lóð nr. 6 við Grænumýri. Meðfylgjandi er teikning.
Staðgengill skipulagsstjóra samþykkir 3,80 metra stæði enda verði frágangur á lóðarmörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.