Frumvarp til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, 133. mál

Málsnúmer 2015090248

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3473. fundur - 01.10.2015

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 24. september 2015 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, 133. mál 2015.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 8. október nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/0133.html

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur bæjarlögmanni að senda inn athugasemdir í samræmi við umræður á fundinum.