Þórunnarstræti 132 - umsókn um byggingarleyfi fyrir gluggabreytingum

Málsnúmer 2015070139

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 551. fundur - 30.07.2015

Erindi dagsett 29. júlí 2015 þar sem Eygerður Þorvaldsdóttir og Valdemar Guðjónsson sækja um leyfi til að stækka opnanlegt fag í gluggum íbúðar 202 í Þórunnarstræti 132. Einnig er spurt hvort hver eigandi sæki um breytingar fyrir sig eða einn fyrir allt húsið. Meðfylgjandi eru ljósmyndir af gluggum.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið en bendir á að sækja þarf um útlitsbreytingu vegna breytinga á gluggum fyrir allt húsið. Leggja þarf fram aðalteikningar af útliti hússins sem gerðar eru af viðurkenndum hönnuði.