Listasafn - endurbætur á þaki

Málsnúmer 2015020127

Vakta málsnúmer

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 257. fundur - 20.02.2015

Lagðar fram niðurstöður útboðs á verkinu frá 29. janúar 2015. Eitt tilboð barst í verkið frá ÁK Smíði ehf að upphæð 13.533.000 kr. sem er 3% hærra en kostnaðaráætlunin sem var 13.130.000 kr.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að gengið verði til samninga við ÁK Smíði ehf.