Norðurgata - umferðarmál

Málsnúmer 2014120056

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 193. fundur - 10.12.2014

Erindi dagsett 21. nóvember 2014 þar sem Perla Fanndal f.h. hverfisnefndar Oddeyrar óskar eftir að umferðarmál og ástand Norðurgötu verði tekið til skoðunar, sérstaklega gatnamót Norðurgötu við Eyrarveg og Gránufélagsgötu. Einnig að umferðarhraði í götunni verði mældur reglulega.
Skipulagsnefnd þakkar bréfritara fyrir innsent erindi. Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdadeild hefur verkfræðistofan Mannvit skoðað umferðarmálin á svæðinu og sérstaklega gatnamót Norðurgötu og Eyrarvegar sem nú eru í hönnun.Að öðru leyti vísar skipulagsnefnd erindinu í skipulagsvinnu Oddeyrarinnar sem til stendur að vinna á næsta ári.