Harðangur - umsókn um breytingar á deiliskipulagi

Málsnúmer 2014110026

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 191. fundur - 12.11.2014

Erindi dagsett 3. október 2014 þar sem Aðalgeir Sigurðsson sækir um leyfi til að byggja 2 til 4 gistihýsi, 20-30 m² að stærð, á lóð Harðangurs við Háhlíð. Meðfylgjandi er uppdráttur móttekinn 5. nóvember 2014.

Skipulagsnefnd telur hugmyndir um byggingu gistihýsa á lóðinni ekki samræmast áætlunum um framtíðarþróun svæðisins og um þéttingu byggðar reitsins (1.33.17 Íb).

Erindinu er því hafnað.