Rangárvellir 4 (landnr. 150126) - fyrirspurn um breytta notkun

Málsnúmer 2014100291

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 191. fundur - 12.11.2014

Erindi dagsett 23. október 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. Sigurðar Eiríkssonar eiganda mannvirkja á Rangárvöllum 4 (landnr. 150126), sem áður hýsti vararafstöð Landsvirkjunar á Akureyri, óskar eftir því við skipulagsnefnd að hún heimili breytingu á skipulagi svæðisins þannig að á lóðinni megi byggja upp aðstöðu fyrir gistingu ferðamanna.

Umrædd lóð er á skilgreindu iðnaðarsvæði og í miklu návígi við spennivirki Landsvirkjunar og RARIK. Skipulagsnefnd telur ferðaþjónustustarfsemi ekki eiga samleið með núverandi starfsemi svæðisins og hafnar því fyrirspurninni.