Umsókn um ferðastyrk

Málsnúmer 2014090278

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 16. fundur - 29.09.2014

Erindi dagsett 16. september 2014 frá fjórum starfsmönnum og stjórnendum Oddeyrarskóla, þar sem þeir óska eftir ferðastyrk til að sækja ráðstefnu um Google umhverfið. Verið er að vinna að þróunarverkefni í Oddeyrarskóla í upplýsingatækni og liður í því er að innleiða notkun á Google umhverfinu fyrir nemendur og starfsfólk skólans. Sótt er um 350.000 kr. styrk til skólanefndar, en áætlaður kostnaður er kr. 640.000.

Skólanefnd getur því miður ekki orðið við erindinu.