Miðbær deiliskipulag - niðurstaða kæru vegna þrengingar Glerárgötu

Málsnúmer 2014080103

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 189. fundur - 15.10.2014

Innkominn úrskurður dagsettur 3. október 2014 frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vegna kæru Friðleifs Inga Brynjarssonar á deiliskipulagi miðbæjarins hvað varðar fyrirhugaða þrengingu á suðurhluta Glerárgötu.
Úrskurðarnefndin kemst að þeirri niðurstöðu að ekki sé sýnt fram á að kærandi hafi lögvarða hagsmuni sem tengjast deiliskipulagsákvörðuninni um þrengingu Glerárgötu. Þar sem ekki þótti sýnt fram á kæruaðild í málinu vísaði úrskurðarnefnd kærunni frá.

Lagt fram til kynningar.