Urðargil 26 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2014070171

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 503. fundur - 30.07.2014

Erindi dagsett 28. júlí 2014 frá Sigrúnu Bjarnhéðinsdóttur og Jóni Pétri Trampe þar sem þau sækja um leyfi til að gera nýtt bílastæði við norðurlóðarmörk lóðarinnar nr. 26 við Urðargil skv. meðfylgjandi teikningu.
Samkvæmt samþykktum aðaluppdráttum er gert ráð fyrir a.m.k. 8m breiðu bílastæði á lóðinni. Á því svæði er því hægt að leggja þremur bílum. Almennt er gert ráð fyrir að ekki séu nema tvö stæði á lóðum einbýlishúsa vegna umferðaröryggis. Skipulagsstjóri hafnar því erindinu.