Duggufjara 12 - umsókn um úrtak fyrir bílastæði

Málsnúmer 2014050092

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 493. fundur - 22.05.2014

Erindi dagsett 14. maí 2014 þar sem Björk Þorsteinsdóttir sækir um leyfi fyrir úrtaki fyrir bílastæði við Duggufjöru 12. Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Nánari útfærsla á staðsetningu úrtaka skal unnin í samráði við framkvæmdadeild. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.