Naustaborgir - fuglatalning 2014

Málsnúmer 2014050047

Vakta málsnúmer

Umhverfisnefnd - 93. fundur - 13.05.2014

Umræður um hvort breyta eigi fyrri ákvörðun umhverfisnefndar um að fresta fuglatalningum við Hundatjörn við Naustaflóa til ársins 2015.

Umhverfisnefnd samþykkir að breyta fyrri ákvörðun sinni vegna sérstakra aðstæðna, að talning fugla við Hundatjörn við Naustaflóa verði framkvæmd árið 2014.

Umhverfisnefnd - 96. fundur - 09.09.2014

Skýrsla um fuglalíf við Hundatjörn í Naustaflóa 2014 kynnt.
Sverrir Thorstensen einn af höfundum skýrslunnar mætti á fundinn undir þessum lið.

Umhverfisnefnd þakkar Sverri fyrir greinargóða kynningu.