Viðurkenningar skólanefndar 2014

Málsnúmer 2014030102

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 6. fundur - 17.03.2014

Fyrir fundinum lá að tilnefna fulltrúa skólanefndar í valnefnd vegna viðurkenninga skólanefndar árið 2014.

Skólanefnd samþykkir að skipa Helga Vilberg Hermannsson sem fulltrúa sinn í valnefndina.

Skólanefnd - 7. fundur - 14.04.2014

Fyrir fundinum lá tillaga um að uppskeruhátíð skólanefndar, þar sem viðurkenningar verða afhentar fyrir framúrskarandi skólastarf, verði haldin þriðjudaginn 13. maí nk. í Hofi.

Skólanefndin samþykkir tillöguna.

Skólanefnd - 8. fundur - 05.05.2014

Fyrir fundinn var lögð tillaga valnefndar um viðurkenningar skólanefndar 2014.
Sædís Gunnarsdóttir S-lista vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og þakkar valnefnd fyrir gott starf.