Staða skólastjóra Síðuskóla

Málsnúmer 2014030099

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 6. fundur - 17.03.2014

Erindi dags. 13. mars 2014 þar sem Ólafur B. Thoroddsen skólastjóri Síðuskóla segir upp stöðu sinni frá og með 1. október 2014.

Skólanefnd þakkar Ólafi fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Skólanefnd - 8. fundur - 05.05.2014

Fræðslustjóri gerði grein fyrir ráðningarferli í stöðu skólastjóra Síðuskóla.
Fræðslustjóri lagði fram tillögu að ráðningu skólastjóra Síðuskóla, en staðan var auglýst 28. mars 2014. Þrjár umsóknir bárust um stöðuna. Við mat á hæfni umsækjenda var skráðu ráðningarferli fylgt, tekin voru viðtöl við umsækjendur og leitað umsagna um þá tvo sem eftir stóðu. Skólanefndarfulltrúar fengu tækifæri til að sitja viðtölin. Þá var haft samráð við skólaráð Síðuskóla.
Fræðslustjóri gerir að tillögu sinni að Ólöf Inga Andrésdóttir verði ráðin sem skólastjóri Síðuskóla frá og með 1. ágúst 2014.

Skólanefnd samþykkir tillögu fræðslustjóra.