Aðalstræti 5 - umsókn um nýtt þak

Málsnúmer 2014030087

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 175. fundur - 26.03.2014

Erindi dagsett 11. mars 2014 þar sem Haraldur Árnason f.h. Sigfríðar Ingólfsdóttur og Ólafs Stefánssonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýju þaki á húsi nr. 5 við Aðalstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald Árnason.
Óskað var eftir afstöðu Minjastofnunar Íslands til framkvæmdarinnar þann 17. mars 2014 í samræmi við ákvæði deiliskipulags svæðisins. Svar barst 24. mars sl. þar sem stofnunin gerir ekki athugasemd við erindið.

Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsstjóra að afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.