Hafnarstræti - umsókn um stöðuleyfi fyrir vöffluvagn

Málsnúmer 2014020045

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 480. fundur - 13.02.2014

Erindi dagsett 10. febrúar 2014 þar sem Almar Miðvík Halldórsson sækir um stöðuleyfi fyrir vöffluvagni í miðbæ Akureyrar. Meðfylgjandi er mynd.

Skipulagsstjóri samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir vöfluvagninum frá 1. maí til 31. október 2014  með þeim fyrirvara að í einstaka tilfellum þurfi að rýma fyrir sviðsvagni bæjarins. Upplýsingar um staðsetningu er hægt að nálgast hjá skipulagsdeild.