Strandgata 49c - umsókn um stöðuleyfi fyrir gám

Málsnúmer 2013100163

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 465. fundur - 16.10.2013

Erindi dagsett 16. október 2013 þar sem Anton Ólafsson sækir um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám á lóð nr. 49c við Strandgötu. Meðfylgjandi er mynd.

Staðgengill skipulagsstjóra frestar erindinu þar sem samþykki meðeigenda í húsinu vantar og upplýsingar um fyrirhugaða notkun gámsins.