Krókeyrarnöf 1 - umsókn um úrtöku úr kantsteini

Málsnúmer 2013100140

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 465. fundur - 16.10.2013

Erindi dagsett 14. október 2013 þar sem Magnús Guðjónsson sækir um stækkun bílastæðis við hús nr. 1 við Krókeyrarnöf. Meðfylgjandi er teikning eftir Tryggva Tryggvason.

Staðgengill skipulagsstjóra hafnar erindinu þar sem hámarkstærð bílastæðis fyrir tvo bíla er 6 metrar og skv. gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir bílastæði fyrir tvo bíla á lóðinni.