Skarðshlíð 33 A - umsókn um svalalokun

Málsnúmer 2013040208

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 441. fundur - 24.04.2013

Erindi dagsett 23. apríl 2013 þar sem Lena M. Otterstedt sækir um leyfi til að loka svölum íbúðar sinnar í Skarðshlíð 33A með einföldum opnanlegum glerskífum. Meðfylgjandi er samþykki tilskilins fjölda eigenda, gátlisti og teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið.