Lundarskóli - ráðning skólastjóra 2013

Málsnúmer 2013040150

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 7. fundur - 22.04.2013

Fræðslustjóri gerði grein fyrir ráðningarferli í stöðu skólastjóra Lundarskóla.
Fræðslustjóri lagði fram tillögu að ráðningu skólastjóra Lundarskóla, en staðan var auglýst 2. mars 2013. Ein umsókn barst um stöðuna frá Elíasi Gunnari Þorbjörnssyni. Við mat á hæfni Elíasar Gunnars var skráðu ráðningarferli fylgt, tekin voru tvö viðtöl og leitað umsagna. Einnig ræddi skólanefnd við Elías Gunnar.
Fræðslustjóri gerir að tillögu sinni að Elías verði ráðinn sem skólastjóri Lundarskóla frá og með 1. ágúst 2013.

Skólanefnd samþykkir tillögu fræðslustjóra og felur honum að ganga frá ráðningu.