Tröllaborgir - ósk um stækkun á húsnæði 2013

Málsnúmer 2013020163

Vakta málsnúmer

Skólanefnd - 4. fundur - 18.02.2013

Erindi frá Hrafnhildi Sigurðardóttur leikskólafulltrúa dags. 14. febrúar 2013.

Óskað er eftir heimild til stækkunar á húsnæði leikskólans Tröllaborga. Um er að ræða leigu á húsnæði á 2. hæð leikskólans sem nýtt verður fyrir skrifstofu skólastjóra, kaffistofu starfsmanna, viðtalsherbergi og geymslu. Við það fjölgar leikskólarýmum sem stendur undir þeim kostnaði sem af stækkuninni hlýst.

Erindið er samþykkt samhljóða.