Sakaskrá - sakavottorð umsækjenda um starf með öldruðum

Málsnúmer 2013020051

Vakta málsnúmer

Félagsmálaráð - 1161. fundur - 13.03.2013

Lagt er til að til viðbótar venjubundinni beiðni til sakaskár komi viðbót í 4. lið varðandi auðgunarbrot, þegar aflað er sakavottorða vegna starfsumsókna hjá Öldrunarheimilum Akureyrar.

Félagsmálaráð samþykkir viðbót varðandi auðgunarbrot þegar sakavottorða er aflað.

Félagsmálaráð - 1163. fundur - 24.04.2013

Í framhaldi af ákvörðun félagsmálaráðs um að leita eftir sakavottorði vegna auðgunarbrota, voru gerðar breytingar á eyðublöðum sem umsækjendur undirrita og eru síðan send til sakaskrár. Svör sakaskrár eru að ekki sé heimilt að gefa umbeðnar upplýsingar og vísað til að hver umsækjandi þurfi að sækja slíkt sakavottorð til sýslumanns. Í því felst kostnaður, tími og fyrirhöfn sem raskar ráðningarferlinu og tímaramma þess.
Því er lagt til að í stað sakavottorðs sem greini auðgunarbrot og dóma, verði umsækjendum gert að undirrita eigin staðfestingu um að þeir hafi ekki gerst brotlegir né verið dæmdir skv. ákvæðum 26. kafla hegningarlaga.

Félagsmálaráð samþykkir framkomna tillögu.