Hafnarstræti - umsókn um stöðuleyfi pylsuvagna

Málsnúmer 2013010060

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 428. fundur - 16.01.2013

Erindi dagsett 8. janúar 2013 þar sem Arnar Þór Þorsteinsson f.h. GA Samvirkis ehf., kt. 630608-0740, sækir um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir pylsuvagna við Sundlaug Akureyrar og Hafnarstræti fyrir árið 2013. Einnig er óskað eftir leyfi fyrir pylsuvagn á Ráðhústorgi innan reits 2.4 fyrir árið 2013. Meðfylgjandi er afrit af starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti og leyfi frá Fasteignum Akureyrarbæjar.

Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi fyrir vagnana.