Frostagata 6c - stöðuleyfi fyrir gáma

Málsnúmer 2012121162

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 426. fundur - 20.12.2012

Erindi dagsett 13. desember 2012 frá Árna Páli Jóhannssyni þar sem hann f.h. Rafmanna, kt. 411297-2419, sækir um stöðuleyfi fyrir tvo 20 feta gáma sem standa við vesturenda hússins Frostagötu 6c (á fyrirhuguðum reit viðbyggingar). Munu þessir gámar víkja um leið og framkvæmdir við viðbygginguna hefjast en áætlað er að hafist verði handa í vor.
Skipulagsstjóri samþykkir stöðuleyfi til eins árs.