SÁÁ - átakið Betra líf - mannúð og réttlæti

Málsnúmer 2012100130

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3340. fundur - 08.11.2012

Erindi dags. 4. október 2012 frá Gunnari Smára Egilssyni, formanni SÁÁ þar sem leitað er eftir stuðningi við verkefnið "Betra líf - mannúð og réttlæti".

Bæjarráð Akureyrar tekur undir bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem samþykkti að fela formanni og framkvæmdastjóra að taka upp viðræður við velferðarráðuneytið, fjármála- og efnahagsráðuneytið og innanríkisráðuneytið til að fá fram með hvaða hætti ríkisvaldið geti stutt sveitarfélögin til að byggja upp nauðsynlega þjónustu fyrir áfengis- og vímuefnasjúklinga, fjölskyldur þeirra og börn.

Bæjarráð skorar jafnframt á SÁÁ að tryggja nú þegar rekstur skrifstofu (starfsemi) á Akureyri. Ljóst er að mikils virði er fyrir alkóhólista og aðstandendur þeirra að hafa aðgang að þeirri aðstoð sem þar er veitt. Undanfarin ár hefur þessi starfsemi sýnt að full þörf er fyrir þessa þjónustu.