Grenivellir 20 - umsókn um stækkun bílastæðis

Málsnúmer 2012100115

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 417. fundur - 17.10.2012

Erindi dagsett 16. október 2012 þar sem Jón Ísfjörð óskar eftir að stækka bílastæði á lóð nr. 20 við Grenivelli. Meðfylgjandi er samþykki nágranna aðliggjandi lóðar og afstöðumynd.

Skipulagsstjóri samþykkir erindið. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.