Torfunefsbryggja - umsókn um minnismerki

Málsnúmer 2012100085

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 417. fundur - 17.10.2012

Erindi dagsett 30. september 2012 þar sem Karl Símon Helgason óskar eftir að setja upp minnismerki á Torfunefsbryggju um skipið Þórð Jónasson EA 350. Meðfylgjandi er samþykki hafnarstjórnar.

Skipulagsstjóri samþykkir fyrir sitt leyti uppsetningu minnismerkis á Torfunefsbryggju með fyrirvara um hugsanlegar skipulagsbreytingar á svæðinu.  

Fyrir liggur samþykki hafnarstjórnar. Staðsetning verði í samráði við hafnarstjóra.