Stapasíða 9 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2012090005

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 412. fundur - 05.09.2012

Erindi dagsett 3. september 2012 þar sem Jón Torfi Halldórsson sækir um stækkun á bílastæði og úrtak úr kantsteini við hús sitt að Stapasíðu 9. Meðfylgjandi eru afsöðumyndir.
Skipulagsstjóri samþykkir umbeðna stækkun á bílastæði með úrtaki allt að 7 metrum. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.