Byggðavegur 122 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2012070111

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 407. fundur - 26.07.2012

Erindi dagsett 24. júlí 2012 þar sem Hólmar Svansson sækir um leyfi fyrir úrtaki úr kantsteini fyrir bílastæði framan við hús sitt að Byggðavegi 122. Meðfylgjandi bréf með nánari skýringum.

Skipulagsstjóri samþykkir úrtak úr kantsteini allt að 7 metrum. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.