Hjalteyrargata 10 - leyfisveitingar fyrir skilti fyrir flugeldasölu

Málsnúmer 2012070044

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 406. fundur - 18.07.2012

Erindi dagsett 4. júlí 2012 þar sem Steingrímur Hannesson f.h. Súlna björgunarsveitar á Akureyri, kt. 640999-2689, óskar eftir leyfi til 3ja ára fyrir viðburðaskilti skv. meðfylgjandi lista til að auglýsa flugeldasölu Súlna. Skiltin verða sett upp 27. desember og eru uppi þar til eftir hádegi 31. desember. Einnig er sótt um uppsetningu á skiltum 4. janúar til 6. janúar.

Staðgengill skipulagsstjóri samþykkir erindið og vísar í meðfylgjandi bréf um leyfða staðsetningu skiltanna.